blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

8.23.2005

Enn Fjölgun

Birta fórnaði hömstrunum og hyggst einnig fórna sér fyrir nýja meðlim fjölskyldunar = Mjási (ég gat engu ráðið... vildi að hann væri nefndur Steingrímur en gekk ekkert)
Risa stórt krútt sem elskar að vera í kúr. Birta ætlar sem sagt að sleppa öllum ferðalögum næstu 15 árin svo kötturinn þurfi ekki að fara í pössun! Hún verður sem sagt 25 þegar hún ætlar sér að fara eitthvað:/ Hann kom til okkar í gær.. svoldið órólegur fyrst en var komin í góðan fíling þegar eg ætlaði að fara að sofa. Lagðist í hálsakotið á mér og malaði svo hátt að eg gat ekki með nokkru móti sofið í nótt. Planið er að hann sofi hjá Birtu ... nú er bara að venja hana af þvi að skríða uppí þvi þá kemur kötturinn líka!
Íbúðin er að skipta um ham þessa daganna... komin kraftur aftur í mann eftir lægð í heimilisviðgerðum. Þetta verður rosa flott :)
Í dag er fyrsti í rútinu ! Skólinn er byrjaður hjá Birtu og allir vöknuðu (mis hressir) kl að verða sjö í morgun. Nú verður maður að kveðja leti og snús og drífa sig af stað. Geisp!

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ég held að Birta geri sér ekki grein fyrir hverju hún er að lofa.

Vona að Mjási færi yl inn á heimilið því fyrir er birta.

Gangi ykkur vel í baráttunni.

Gleðilegt haust

bibbi

11:06 PM

 

Post a Comment

<< Home